Ekki er öll vitleysan eins
Nú er Andri víst búinn að klukka mig. Þá verð ég víst að setja fram 5 random staðreyndir um sjálfan mig og klukka svo 5 bloggara í viðbót. Zindri greyið var víst líka búinn að klukka mig, en þar sem hann er blogglatari en andskotinn sjálfur var ég bara hættur að lesa hann. It's your own damn fault, boy!!!
en hér fer ekkert:
1. Ég er með plattfót
2. Ég hef náð að vinna 55 Freecell leiki í röð
3. Ég hef sett Vestmannaeyjamet í 3000 metra hlaupi... með því að vera fyrsti Vestmannaeyingurinn sem keppir í því.
4. Ég hef brotið tönn í bjórdrykkjukeppni
5. Ég var hrikalega nefmæltur fram að unglingsárum, þegar ég var settur í talkennslu
Ég held ég klukki Ernu Björk, fangor, Gumma Lú, Tröllatíkina og Hildi Sævalds

Já blessaður ... ég klukkaði þig langt á undan Sindra. Svo hans klukk er bara ógilt!
Velkominn í borgina. Ljúbediskar verða brenndir og bíða þín ef þig vantar þá ennþá.
Andri, þú ert ógilt!!!