"Altso"
"Altso" er orð sem fer alveg óendanlega í taugarnar á mér. Einnig hef ég tekið eftir því að flestir þeir sem nota þetta orð að jafnaði eru leiðinlegir. Amma mín er undantekning, hún notar orðið "altso" og hún er ekki leiðinleg, en hún fer nú að ná níræðisaldrinum, þannig að það er örugglega skýringin á því af hverju hún notar þetta guðsvolaða orð. En ég veit um fólk sem er bara á fertugs- eða fimmtugsaldri og notar þetta samt! Hvaðan kemur þetta orðskrýpi, og hvað í andskotanum þýðir það? Er það bara svona gamaldags útgáfa af "héddna" eða "þú'st"?
Á öðrum nótum, þá er kominn tími til að ég bindi enda á þessa vitleysu hjá mér.
Þrítugsafmælið hennar Huldar á morgun. JEIJ!!!

Ertu viss um að þú sért ekki bara kominn með phenylalanine eitrun?! Altso er bara sletta úr dönsku eða eitthvað.....maður segir mjög oft alt så á norsku og ég get bara ekki fundið neitt íslenskt orð í staðinn....jú SEM SAGT :)
Einmitt. What the girl said. Altso er dönskusletta sem merkir "sem sagt" eða "sem sé".
Pabbi notar þetta orð við og við. Það fer soldið í taugarnar á mér líka þetta orð, en mér finnst pabbi ekkert leiðinlegur.
Ástþór alhæfar ...
"Ástþór alhæfari" átti þetta víst að vera :P
Cool blog. Greetings.
http://lorfatlines.blogspot.com/