Enn stækkar hópurinn
Kjartan hinn geðþekki hefur hafið upp stafræna raust sína og því er eins gott að taka vel eftir. Alla Hanna hefur sett inn málamyndapóst og fær hún því að birtast, en í fyrstu bara í hundakofanum. Ef pósttíðnin verður mér að skapi þá ferðu fljótlega inn á aðallistann Alla mín ; )
Annars er það að frétta að ég finn ekki kapalinn sem tengir myndavélina mína við tölvuna (pirr!!!). Annars væri ég búinn að henda inn myndunum sem ég tók í afmælisveislu helgarinnar sem var, já, grímupartý. Verð að finna þetta.
Svo hef ég hér með losað mig við ferlíkið mikla, bassamagnarann minn þ.e.a.s. og hef því opinberlega hafið söfnunina fyrir næsta skólaári. Bæ ðö vei, veit e-r um góða vinnu sem er laus milli júlí og október og borgar yfir 200.000 á mánuði, annað hvort á höfuðborgarsvæðinu eða í Eyjum? Ekki??? Kemur á óvart

þetta er nú bara skítlegt. bæta kjartani við um leið og hann lætur sjá sig og hunsa mig sem er búin að blogga svo árum skipti. þú skalt ekkert eiga von á því að ég bjóði þér í ammælið mitt :-Þ
sjitt!!! Hvað er ég að spá???
Vinsamlegast taktu við auðmjúkri og innilegri afsökunarbeiðni minni og beiðni þess efnis að þú atir mannorð mitt ekki auri vegna þessarar óheppilegu yfirsjónar minnar.
Ef þú vilt koma og vinna í drullunni með mér - í múrblöndu hjá BM Vallá - þá get ég tékkað á yfirmanninum. Þetta er rock solid manly verkamannavinna - sementspokar eru lykilatriði - og þú fitnar ekki á meðan. Heyrðu í mér með nánari upplýsingar, karl - snorrihergill @ hotmail . com