2. dagur í þynnku
...sem þýðir bara eitt: Helgin var með besta móti, fyrir utan gærdaginn auðvitað. Skotta tók á móti mér kl. 21:30 á föstudagskvöldið. Við hentum farangrinum mínum inn í herbergið hennar og héldum rakleitt á pöbbann þar sem nokkrir vinir hennar biðu eftir okkur og svo var bara byrjað að drekka og spjalla. Ég og Andy vinur hennar tókum nokkra pool leikir og Andy afrekaði dálítið sem ég er nokkuð viss um að ég hef aldrei séð: hann setti þrjár kúlur niður í einu skoti! Verst að þær voru allar mínar : ) Þegar pöbbinn lokaði var haldið á smá klúbbarölt og stoppað við á misskemmtilegum stöðum en við enduðum á klúbb þar sem soul og funk var allsráðandi og kættist ég því mikið og dansinn stoppaði ekki fyrr en dyraverðirnir fóru að stjaka við okkur.
Daginn eftir tók Skotta mig í smá göngutúr og dró mig meðal annars inn í búð þar sem geisladiskar fást í miklu úrvali á aðeins 5 pund erfitt að ákveða sig þegar maður stendur frammi fyrir svona úrvali, en ég náði að halda aftur af mér... stoppaði þegar ég var kominn með fjóra diska í hendurnar. Borðað, drukkið smá, og svo í grillveisluna, sem ég hafði víst kallað hoppikastalahátíð í eihverjum póstinum hér um daginn, en kastalarnir voru engu að síður til staðar og gekk frizbee í barndóm í nokkra klukkutíma. Svo var bara haldið partý í eldhúsinu, ég fór við annan mann að sækja bjórbyrgðir, Skotta skaffaði tónlist og mikil skemmtun höfð þangað til að við töldum tíma til kominn að kíkja á Mr. Scruff. Og þvílíkur dídzjei!!! Ef einhverjir framtakssamir lesa þetta þá mega þeir alveg flytja þennan mann inn við gott tækifæri. Djömmuðum fram eftir öllu og vöknuðum síðan hálf heiladauð daginn eftir, smá labb, matur og lestarferð heim.
Svei mér þá ef ég freistast ekki til að endurtaka leikinn eftir mánuð.

Nú þarf ég bara að komast inn í Royal Scottish og þá getum við gert okkur það að leik að mætast á miðri leið :D
akkúrat! Við tökum bara norður England smátt og smátt :)
jamm gleraugun eru hér, sendu mér adr. og ég reyni að redda þessu á morgun. Eða hinn!!
Aðdáendaklúbburinn þinn biður að heilsa :)
ohhh mig langar svo á svona skemmtilegt djamm.... kannski maður kíkji bara um helgina???