fimmtudagur, febrúar 17, 2005

Hva? Bara eintómir íslenskir stafir og læti!

Jamms, ástæðan fyrir því, og þögn síðustu daga, er sú að nú er lestrarvika og því sést ég lítið niðrí skóla, nema til þess að sækja bækur og rétt glugga á netið eftir allra nauðsynlegustu upplýsingum, eins og t.d. hvar klúbb sem sérhæfir sig í funk og soul tónlist er að finna : ) .
Þar af leiðandi fer allt blogg fram á lappanum mínum góða og bíður svo eftir að vera flutt yfir á skólatölvurnar og þaðan á veraldarvefinn svo þið getið glaðst yfir frekari fréttum frá frísklegum frizbee.

(vinsamlegast takið það til greina að þessi færsla var skrifuð á nokkrum dögum eins og um margar mismunandi færslur væri að ræða, og þar sem ég hef ekki nennu til að prófarkalesa og umskrifa þetta, þá fáið þið þetta bara svona)

Sunnudagur, 13. feb.
Síðastliðinn föstudag lauk fyrsta áfanga námsins, og í næstu viku byrjum við að vinna með gríska harmleiki, spænsku gullöldina og breskt leikhús á 20. öld auk þess sem við skoðum Bertolt Brecht og fleiri. Þessi vika fer í að lesa þrjú leikrit: Antigony eftir Sófókles, Stjórnleysingi ferst af slysförum eftir Dario Fo og Mutter Courage og börnin hennar eftir Brecht. Einnig þurfum við að lesa bækur með skrifum Brechts og Augusto Boal um hvernig þeir nálgast leiklist.
Í síðustu viku unnum við í tólf tveggja til þriggja manna hópum með smá kafla úr Vinnukonunum sem sýndu síðan afraksturinn hver á eftir öðrum á fimmtudaginn. Það sem var skemmtilegast við þessa vinnu var að þarna sá maður sömu atriðin flutt oft og mörgum sinnum, en aldrei voru þau eins. Ég var nokkuð ánægður með afraksturinn hjá mínum hóp, en hápunkturinn var án efa þegar þessar dömur sýndu sitt atriði : )
Svo byrja ég að vinna með Emmu, sem er á þriðja ári, í verkefninu sem hún er að undirbúa, í næstu viku. Verkefnum þar sem við þurfum að vinna sjálfstætt fyrir utan kennslutímana fer fjölgandi, þannig að brátt fer maður að vera á fullu niðrí skóla í 8 – 10 tíma á dag, og þannig á það líka að vera.

Miðvikudagur, 16. feb.
Mikill lestur búinn að fara fram undanfarna daga... enda lestrarvika. Á mánudaginn dreif ég mig í verslunarleiðangur, til að kaupa fatnað sem mig vantar fyrir skólann. Ekkert varð af fatakaupum, en ég festi hins vegar kaup á helvíti fínni skyrtu á 5, fyrstu 3 Discworld bókunum saman í pakka, Introducing Philosophy og safndiski með nokkrum af bestu lögum Curtis Mayfield. Allt þetta kostaði innan við 35 pund : )
Á þriðjudaginn las ég heil tvö leikrit – Mutter Courage og börnin hennar og Stjórnleysingi ferst af slysförum – fyrstu 100 síðurnar í The Colour of Magic (fyrstu Discworld bókinni), og um 50 síður í Introducing Philosophy. Allt í allt eru þetta um 300 síður, sem sumum finnst kannski ekki mikill lestur á einum degi, en fyrir lestrarletingjann hann frizbee er þetta mikið afrek, svo ekki sé minnst á persónulegt met, en það gamla stóð í rúm tíu ár, eða síðan að hann las Flóttamanninn eftir Stephen King (heilar 190 síður!!!) á einum degi.

Fimmtudagur, 17. feb.
Stundum spáir maður í furðulegustu hlutum. Þau eru ófá lögin þar sem sungið er um söknuð, og oftar en ekki er því líkt við söknuð eyðimerkurinnar eftir rigningu. Þangað til nýlega hafði ég gúdderað þessa samlíkingu, en um síðustu helgi heyrði ég eitt slíkt lag og þá datt mér þetta í hug: Þegar það rignir í eyðimörk, er þá ekki tilveru hennar stefnt í hættu? Er eyðimörk ekki eyðimörk vegna þess að þar er lítil sem engin rigning? Ef það rignir aldrei, þá er eyðimörkin ekki bara enn þá til, heldur orðin “meiri” eyðimörk, laus við allt líf. En ef það myndi allt í einu byrja að rigna reglulega, myndi þá ekki gróður byrja að spretta og dýralíf aukast, og eyðimörkin smám saman hætta að vera til? Því spyr ég: Af hverju í andskotanum ætti eyðimörk að sakna rigningar???

6 Comments:

At 18/2/05 11:36, Gumster said...

Heldur þú að þú getur bæt fyrir það að blogga ekkert í heila viku með því að setja sömu færsluna inn fjórum sinnum,we are on to you boy.

 
At 18/2/05 11:47, Nafnlaus said...

Hahahahahaha nákvæmlega!!! Hélstu kanski að við mundum lesa allar færslurnar og ekki fatta það þetta væri alltaf sú sama.
En í sambandi við eyðimerkurnar þá held ég að þú hafið bara nokkuð til þíns máls að leggja, aldrei þessu vant :o) Annars held ég að eyðimörkin sem slík sakni ekki rigningarinnar heldur íbúar hennar, sem þurfa á vatin að halda til að lifa af.
Mér finnst þú líka geðveikt duglegur að lesa svona mikið, ég hefði aldrei þolinmæðina. Hafðu það annars geggað gott og sjáumst brátt Alla

 
At 18/2/05 12:55, hs said...

Eyðimörkin, já. Ekki er ég viss um að þetta heimspekirit hafi gert þér gott.

 
At 20/2/05 17:33, GECKO said...

Hahahahaaaa... Hahahaha! Frábært...
You´re only supposed to press "Publish" ONCE!!! ;)

 
At 21/2/05 14:53, frizbee said...

Ok, thessi fjorfalda faersla var feill af minni halfu, en bara ut af thvi ad tolvurnar herna a bokasafninu geta verid svo helviti slow. Madur ytir a "publish"... og bidur... og ekkert gerist, og tha (eins og halfviti) ytir madur a publish aftur til ad itreka, og aftur og aftur :P

 
At 21/2/05 14:56, frizbee said...

...og Hordur, thessi paeling skaut kollinum upp adur en eg keypti bokina

 

Sendu inn athugasemd

<< Home