þriðjudagur, október 19, 2004

Simple minds, simple pleasures

Sidcup er að mörgu leiti ekki eins eftirsóknarverður staður og Reykjavík. Hér er ekki eins skemmtilegt
og fjölbreytt næturlíf, hér er engin keiluhöll og, eins og ég hef minnst á áður, hér er enginn staður með þráðlaust internet.
En eitt hefur Sidcup sem Reykjavík hefur ekki: Íkorna! Íkornar eru skemmtilegir. Íkornar eru sætir. Í hvert skipti sem ég labba í skólann verða íkornar á vegi mínum og það styttir gönguna töluvert að fylgjast með þeim meðan maður labbar fram hjá. Íkorna Til Íslands, segi ég!!!

They alway eat with two hands, don't they? Then they suddenly look up, as if they're going "Did I leave the kettle on? ... No, I'm a fucking squirrel"
Eddie Izzard, Dress to Kill

Hef undanfarið óskað þess að ég væri í European Theatre Arts í staðinn fyrir American
Theatre arts. Þó ég njóti kúrsins sem ég er í, þá heyrist mér að ETA sé meira eitthvað fyrir mig.
Svo er líka áhugaverðara lið í ETA. Amerískt leikhús er of natúralískt, sýnist mér. Mér skilst að það sé lítið um spunaæfingar í náminu mínu, og svo hafa amerísku stelpurnar (sem koma frá skólanum sem ég verð í, og eru settar inn í annað árið á ETA) verið að segja mér frá þessum "asnalegu æfingum" sem þær þurfa að gera, en þessar æfingar eru að miklu leiti þær sömu eða svipaðar þeim sem ég hef gert með leikfélögunum heima. Í gær komst ég að því að sá möguleiki er fyrir hendi að skipta yfir til ETA. Ég á eftir að ræða nánar við kennarana mína og þann sem er yfir ETA kúrsinum, en ég hlýt að þurfa að klára þetta ár í ATA og byrja svo aftur á fyrsta ári í ETA. Ef svo er, þá gleymi ég því bara, ég hef ekkert við 1,5 milljóna kr. skuld í viðbót að gera.
En ef ekki... þá er spurningin þessi: Á ég að fara yfir í ETA og halda mig við það sem ég þekki og skoða það nánar, eða halda áfram í ATA og kynnast amerískri leikhúshefð til hlítar og sjá hvort ég kynnist ekki einhverju sem vekur áhuga minn á því?

(GRENJ) Af hverju er lífið svona flókið???

5 Comments:

At 19/10/04 18:34, Gumster said...

Hættu þessu grenji kelling, það vorkennir þér enginn. Þetta er ekki flókið, lærðu það sem þér fynnst skemmtilegt.

 
At 19/10/04 23:57, Skotta said...

Alveg sammála þér með íkornana. Það er einmitt ein sem býr í trénu við hliðina á húsinu mínu og heldur mér oft félagsskap þegar ég er úti að reykja.

Varðandi valið, auðvitað áttu að gera það sem gera það sem er skemmtilegt, vertu bara viss um að það sé ekki einhver nostalgía í þér. En er eitthvað sem stoppar þig í að gera annað núna, en halda áfram að kynna þér kosti og galla hins á eigin spýtur. Er endapunturinn ekki hreinlega hvaða tegund leikhús þig dreymir um að vinna við???

 
At 20/10/04 03:21, Nonni said...

Bíddu leikl...? Ertu ekki í múraranámi ?
'Eg myndi velja ETA, ég las mér helling til um skólann og fannst það mun áhugaverðara.
Þar að auki valdir þú það ekki til að byrja með ?
Anyway, rokk og róll.

 
At 20/10/04 11:16, frizbee said...

Nei, eg sotti um i Acting Course. Einhverra hluta vegna fekk eg ekki ad velja milli ATA og ETA fyrst (ef svo hefdi verid hefdi eg bokad valid ETA). Svo var eg ad fa ad vita thad i gaer ad thad er moguleiki ad eg svissi yfir strax, en eg tharf ad fara a nokkra fundi fyrst...

 
At 20/10/04 14:42, Erna Björk said...

Fylgdu hjartanu... ekki vera að flækja þetta. Ef það opnast dyr fyrir þig í ETA myndi ég bara skella mér og það af öllum lífs og sálar kröftum. Kannski fittar þú líka betur inní bekkinn þar... hver veit.
Ekker væl!

 

Sendu inn athugasemd

<< Home