Farinn og kominn
Skrapp til Reykjavíkur um daginn til að sjá lokasýningu Leikfélagsins Sýna á Stútungasögu. Þegar ég var búinn að koma mér fyrir heima hjá Stebba, Nönnu og co. um hádegið var haldið rakleiðis niður á Austurvöll til að sleikja sólina með Nönnu og Steina Rót þangað til um kl. þrjú. Þá slóst Rúna í hópinn og var haldið af stað út í Heiðmörk þar sem leiksýningin fór fram. Eftir þá miklu skemmtun var chillað á Vesturgötunni þangað til kominn var tími til að mæta í partý í húsnæði Hugleiks. Sérstaklega hressandi teiti þar sem ég hef sárt saknað ýmissa sem ég hitti þar. Eftir það tók við bæjarferð sem varð að fáu leiti minnisstæð. Daginn eftir kíkti ég í heimsókn í nýju íbúðina hennar Ernu beib og spjallaði þar þangað til Rúna kom og sótti mig til að ferja mig á vinnustaðinn sinn: Draugasetrið á Stokkseyri. Fékk að upplifa túrinn og ég get ekki annað en mælt með þessu. Áhugavert að heyra sögurnar sem þarna eru sagðar og láta hræða úr sér vitið af og til :)
nú eru ellefu dagar í Englandsför, lokaundirbúningur hafinn, og svefn verður æ sjaldgæfari...

Erna beib???? Are you fourteen??????
Ó, fyrirgefðu frú mín góð. Það sem ég hefði viljað segja er "Ernu hinnar yndisfríðu".
pff!
Miklu betra;) Sjálf kýs ég Erna hin Mikilfenglega eða Rauða Ógnin... þú ræður;)
Af þessu tvennu kýs ég frekar Rauðu Ógnina :Þ