Is it time to panic now?
Nei, allavega ekki strax.
Fyrsti dagurinn okkar sem leiðbeinendur götuleikhússins er liðinn og allir á lífi. Erum með 12 krakka undir okkur, sumir eru bara þarna til þess að þurfa ekki að raka saman heyi eða tína rusl, aðrir af hreinræktuðum áhuga. Nú er bara að vinna þá áhugalausu yfir á sitt band og smita þá af bakteríunni for good. Múah múah múaaaaah! Síldartorfan hennar Ágústu Skúla virðist ekki geta klikkað, það er að segja þegar fólkið í torfunni einbeitir sér að henni. Fékk gæsahúð af og til þegar hópurinn virkaði sem ein sál, en vildi svo helst fara að gráta þegar það voru allt í einu mættir 12 unglingar sem fannst þetta voða asnalegt eitthvað. Eins gott að ég er búinn að vera mest undir leiðsögn Ágústu á mínum stutta ferli, því annars væri ég örugglega búinn að bíta hausinn af einhverjum í staðinn fyrir að sýna smá þolinmæði þegar fókusinn fer út í veður og vind (eins og hann hefur svo oft gert hjá manni sjálfum :Þ ) Nú er bara að skipuleggja sig aðeins betur og virkja krakkana meira!!!
"You can do it Ástþór!"
- "Thanks, Voice in my Head"

Hei darling....Hafdís hér you crazy crazy man..... gott að það eru fleirri hér sem hafa þessa tjáningsþörf... :) ég er tapa mér....http://www.folk.is/fljugandi..... en ég væli aðalega...grrr ífff um puff
p.s fullt af myndum að þér á minni síðu.... you animal
takk fyrir það! Linka á síðuna svo aðrir geti notið dýrðarinnar ;)